10. mars 2009 klukkan 16:21
á fimmtudaginn í seinustu viku var grunnskólahátíðin og það var gjöðveikt mikið stuð skooo....Sign, Kicks og Buff voru hljómsveitirnar sem voru og svo var líka 1. & 2. sætið úr söngvakeppni Hfj. og fleira þannig. Morguninn eftir var svo frí í fyrstu þrem tímunum í skólanum
og þá fékk ég að sofa út...smile... á laugardaginn kom þórhildur vinkona mín og við og freyja fórum út í fótbolta og eitthvað þannig rugl. annars er bara þetta venjulega að frétta héðan, semsagt þetta fína
allaveganna þá nenni ég ekki að blogga meira í bili geri það bara seinna....
Júlía Ósk Hafþórsdóttir
26. febrúar 2009 klukkan 16:41
ég er með smá fjáröflun og er að selja klósettpappír og eldhúspappír, 3 gerðir af klósettpappír og 1 af eldhúspappír. má bjóða þér að kaupa? ef þig langar í eitthvað af þessu eða meiri upplýsingar hafðu þá bara samband. hér á síðunni eða hringdu fyrir miðvikudagskvöldið 4.mars...
- annars er ekki nógu gott að frétta hér hjá mér, ég er veik, var það líka í gær og í fyrradag, en ég var í skólanum allan þriðjudaginn til að ég gæti keppt um kvöldið mig langaði ekki að sleppa því og keppti því drulluslöpp leikinn en það var varamarkmaður ef ég hefði enga orku og hún kom inná í restina, við unnum leikinn 20-29 :D.. mamma var hjá lækni áðan og hún þarf að fara í aðgerð aftur :/

það er vetrarfrí hjá mér núna og ég þarf ekki að mæta í skólann fyrr en á miðvikudaginn en sandra og bergþór á þriðjudaginn, og ég er laus við söndru í bili því hún fór áðan í bústað með vinkonu sinni
allaveganna nóg í bili...
Júlía Ósk Hafþórsdóttir
04. febrúar 2009 klukkan 17:36
a-ogb-liðið töpuðu bæði í eyjum :S en ég er búin að fá úr prófunum og á einkunnablaðinu var úr prófunum og heimanám og skyndipróf og allt það en prófið gilti bara lítinn hluta og þá var lægsta einkunnin 8,0. Annars er ég ekkert búin að keppa síðan í eyjum, ég átti að keppa á laugardaginn en leiknum var frestað vegna þess að þjálfarinn var að fara að keppa á sama tíma og engin annar gat verið svo leiknum var frestað, svo átti ég að keppa á laugardaginn næsta en neinei það er líka búið að fresta honum og ég held að næsti leikur sé ekki fyrr en 15.febrúar á móti ?.
á mrg. er -haukar-FH (aftur :D)og á sunnudaginn er undanúrslit í handbolta í m.fl. karla FH-valur :P ég ætla á báða býst ég við að hvetja mitt lið -FH-...
allaveganna þá held ég að það sé jeppaferð á laugardaginn í vinnunni hans pabba og ef þetta er fyrir familyurnar líka þá þarf ég verulega mikið að hugsa um hvort ég nenni með. ég gerði tilraun til að setja inn myndir hér um daginn en það var svo lengi að ég gafst upp og EKKERT gerðist, ekki neitt....
nóg í bili skrifa aftur seinna XD
Júlía Ósk Hafþórsdóttir
16. janúar 2009 klukkan 21:58
núna eru prófin byrjuð og var prófdagur í gær og dag og svo eru aftur á mánudaginn og þriðjudaginn, þá þarf ég að mæta kl. 08:30 í skólann og svo er próftíminn frá 08:30-10:00. á annað kvöld fer ég svo til eyja og þegar við komum um 10/11 leytið þá er pizza og svo einhver atriði og stuð. á laugardeginum er svo leikirnir hjá bæði a- og b-liði (b á undan)), og förum heim með 4 ferjunni. Nú er ég byrjuð hjá sjúkraþjálfara. allaveganna er ekkert að frétta hér allaveganna ekki í bili svo ég kveð að sinni og segji bara bless í bili, ekkert stress og verið hress
Júlía Ósk Hafþórsdóttir
03. janúar 2009 klukkan 20:16
halló og gleðileg jól og gleðilegt ár og allt það rugl. ég var að koma af akureyri áðan (laugardag) og er búin að vera þar síðan á þriðjudaginn með fjölskyldunni og við vorum í íbúð sem við leigðum held ég og ég fékk ekki að vita fyrr en á mánudeginum að við værum að fara norður, en þau ákváðu þetta í haust.. eftir að ég kom heim fór ég til Rebekku og gisti þar fram á sunnudag og það var svaka stuð og allt það auðvitað... en allaveganna þá eru prófin að fara að byrja. næstu helgi fer ég til vestmannaeyja með herjólfi

(ÉG HATA HERJÓLF!!) en allaveganna þá er ég að vinna í sjoppunni á laugardaginn, og fer til eyja laugardagskvöldið og kem aftur á sunnudeginum og er þá a-liðið búið að keppa 1 leik og b-liðið einn leik..........en allavega nenni ekki meir í bili svo skrifa seinna..
PS.:takk fyrir jólagjafirnar og það (takið það til ykkar sem eigið það))
Júlía Ósk Hafþórsdóttir
24. desember 2008 klukkan 14:50
gleðileg jól því jólin eru á eftir. og eitthvað en allaveganna ætlaði bara að segja gleðileg jól....:D:D:D
Júlía Ósk Hafþórsdóttir
19. desember 2008 klukkan 12:13
ég er komin í jólafrí og er búin í klippingu og næ hárinu ekki lengur í tagl

. en allaveganna þá eru að koma jól og eitthvað. á morgun (laugardag) förum við að höggva jólatré og það verður stuð...en allaveganna þá MINNI ÉG AFTUR Á
AFMÆLISDAGBÓKINA!!
Seinustu helgi þá komu Helga, Guðjón og Magnús Ingi og voru hjá okkur yfir helgina (spurning hvað Helga og Guðjón voru mikið hér samt yfir helgina, og þau fóru svo á mánudaginn. Á mánudagskvöldið kom svo Fríða frá York og var hjá okkur fram á miðvikudag.
en allaveganna þá nenni ég ekki að blogga meir í bili hef ekkert að blogga um en allaveganna bless í bili.
Júlía Ósk Hafþórsdóttir
14. desember 2008 klukkan 18:05
það eru innan við 2 vikur í jólin og ég er sko komin í jólastuð, búin að hlusta á jólalög í yfir 2 vikur. og búin að baka smá, en það er svo mikið að læra, og samt eru janúarpróf hjá mér en nóg í bili svo bless verið hress og ekkert stress
Júlía Ósk Hafþórsdóttir
03. desember 2008 klukkan 18:34
það er ekkert mikið búið að vera um að vera hjá mér, búin að vera að keppa, æfa og fleira þannig var valin í U-15, komin í spelku og ekkert að frétta annars.. allaveganna nóg í bili.
Júlía Ósk Hafþórsdóttir
07. nóvember 2008 klukkan 14:09
Í vikunni er búin að vera þemavika í skólanum og í gær var forvarnadagurinn og við fórum í leikhús að sjá eitthvað leikrit og í þemavikunni voru hópar og það fengu ekki allir að gera allt og á miðvikudaginn var ég að baka súkkulaðiköku sem við borðuðum svo áðan,allaveganna nóg um það. Á miðvikudaginn var meistaraflokkur karla að keppa FH-haukar í kaplakrika og það voru um 2600 manns á leiknum og FH vann leikinn 29-28



. en allaveganna nóg í bili skrifa aftur seinna.
Júlía Ósk Hafþórsdóttir